Þann 9. mars 2018 komu í heiminn 9 sprækir Border Collie hvolpar undan Brá og Prince. Við erum voðalega lukkuleg með bæði liti og kynjaskiptingu í þessu goti.
1. Svört tík 2. Blue merle tík 3. Mórauður hundur með kraga og blesu (og blett ofan á hausnum). 4. Blue merle rakki 5. Blue merle tík 6. Svartur rakki 7. Mórauð tík 8. Mórauður rakki 9. Svört tík með kraga og blesu
Nánari upplýsingar fyrir áhugasama má nálgast á manaskal@gmail.com eða í síma 699-0456 (Kolla).
4. vikna
Hvolparnir 3. vikna
Hvolparnir stækka og dafna. Tíminn líður svo hratt að þeir verða farnir að tínast að heiman áður en ég veit af. Hvolparnir eru búnir að opna augun og farnir á stjá. Núna fer þetta að verða skemmtilegt! Ég hlakka til að sjá karakterinn þeirra koma í ljós og spá og spegúlera í þeim. Ég læt fylgja með myndir frá síðusta hálfa mánuði.